Enginn er eyland

Andrés Magnússon

Enginn er eyland random header image

Færslur frá October 2007

Um fúkyrði og jiddísku

30. October, 2007 · Ein athugasemd

Ég hef verið að skemmta mér við að lesa gömul dagblöð að undanförnu, fyrst og fremst þó stjórnmáladálkana. Það býr mikil saga í þeim, þeir eru yfirleitt með fjörmesta efni blaðanna og sumir eru alveg ljómandi vel skrifaðir.
Flestir eru þessir dálkar nafnlausir, þannig að maður veit sjaldnast hver hélt á penna, en sumir merktu sér [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál

Harry Potter og pólitíkin

28. October, 2007 · Engar athugasemdir

Á Eyjunni má finna frásögn af grein franska blaðsins Libération um hvernig Harry Potter eigi að vera einhver lykilsaga gegn Möggu Thatcher, Phony Blair og bandaríska draumnum, eins og miðstéttir Bretlands vilji upplifa hann. Potter sé í raun ofurhetja hinnar vinstrisinnuðu öreigahástéttar og eitthvað svoleiðis. Þessu heldur heimspekingurinn og málfræðingurinn Jean-Claude Milner fram í grein, [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Alþjóðamál · Menning · Stjórnmál

Ofurhetjan

26. October, 2007 · Ein athugasemd

Skógareldarnir í Kaliforníu eru ekkert minna en skelfilegir, en hitt er gleðilegt, hversu vel hefur þó tekist að hemja þá, flytja fólk af hættusvæðum, koma því í skjól, brauðfæða það allt og svo framvegis. Það er mál manna að ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger hafi vaxið gríðarlega í áliti við þessa raun, en við hverju bjuggust menn [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Alþjóðamál · Stjórnmál

Þræðir sögunnar

26. October, 2007 · Ein athugasemd

Ég sé að Egill Helgason og Andrés nafni minn Jónsson eru að finna að því, svona eftir á, að Björgólfi Thor Björgólfsson skuli hafa verið seld Thorsara-höllin við Fríkirkjuveg 11. Egill sér aðallega eftir athafnasvæði sínu og Kára litla, en hann virðist ekki átta sig á að garðinum fylgja kvaðir um frjálsan aðgang almennings. Andrés [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Almennt · Menning

Á ég að gæta bróður míns?

20. October, 2007 · 3 athugasemdir

Mér var bent á það að í helgarblaði DV mætti finna klausu um undirritaðan í Sandkorni, sem sjá má hér til hliðar. Nú ber að horfa til þess að DV fjallar jafnan um stjórnmál af einstakri vanþekkingu, þannig að oft verður úr prýðilegt skemmtiefni fyrir áhugamenn um stjórnmál, en þessi klausa er svo grautarleg, að [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Fjölmiðlar · Stjórnmál

SA á villugötum

19. October, 2007 · Engar athugasemdir

Ég var að glugga í nýútkomna greinargerð Samtaka atvinnulífsins (SA) um horfur í efnahagsmálum. Greinargerð er kannski fullhátíðlegt nafn, þarna er fyrst og fremst verið að lýsa almennum viðhorfum, en engin sérstök greining eða rannsóknavinna að baki.
SA er við sama heygarðshornið að beina spjótum sínum að Seðlabankanum, sem halda mætti að væri eini vágesturinn í [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál · Viðskipti

Svo skal böl bæta

17. October, 2007 · 5 athugasemdir

Áróðursmeistarar Framsóknarflokksins hafa verið önnum kafnir síðustu dægrin við að benda á það að einhverjir fleiri gætu nú hagnast á samruna REI en tómir framsóknarmenn. Auðvitað er það rétt. Skárra væri það nú, fáir sem þeir eru blessunarlega orðnir.
Ég hef séð blogga, þar sem menn eru að reyna að reikna þetta fram og til baka, [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál · Viðskipti

Til varnar Villa

15. October, 2007 · 9 athugasemdir

Það er merkilegt hvernig menn láta eins og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafi orðið uppvís að einhverri lygi í Orkuveituóperunni, af því að fram kemur í greinargerð frá Bjarna Ármannssyni, stjórnarformanni REI, Hauki Leóssyni, stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur og Hjörleifi B. Kvaran, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, að honum hafi verið kynnt tiltekið minnisblað Bjarna Ármannssonar á „löngum fundi“, [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Fjölmiðlar · Stjórnmál

…allir saman nú!

13. October, 2007 · 2 athugasemdir

Pétur Gunnarsson, ritstjóri Eyjunnar, býsnast yfir því að bent sé á framsóknarmafíuna að störfum. Ýjar nánast að því að mannréttindabroti í því, hvort að framsóknarmenn megi ekki stunda viðskipti eins og annað fólk. En þá er Pétur að missa af punktinum. Hann er sá að framsóknarforkálfum virðist fyrirmunað að stunda viðskipti eins og annað fólk. [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Bloggslóðir · Fjölmiðlar · Stjórnmál

Svik

11. October, 2007 · 6 athugasemdir

Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, fráfarandi borgarstjóra, varð tíðrætt um svik Björns Inga Hrafnssonar, sem hafði handsalað ævarandi — ókei, tveggja og hálfs árs — tryggð við sig og meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, nokkrum mínútum áður en hann gekk til samstarfsviðræðna við minnihlutann, sem nú hafa náð saman í kringum einhverja afar óljósa hagsmuni.
Gott og vel, í [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál