Frá greiningardeildum bankanna streyma álitsgerðir og greiningar, spádómar og speki. Ekki er það nú allt jafnfrábært. Það er t.d. minnstætt á dögunum, þegar Kaupþing batt vonir við það í afkomuspá sinni fyrir 365, að „góð innlend dagskrágerð [skilaði] auknum tekjum til félagsins á árinu“. Merkilegt nokk, var ekkert á það minnst að verkfall handritshöfunda vestanhafs [...]
Færslur frá November 2007
Greind, greining og Group
30. November, 2007 · 6 athugasemdir
Flokkun: Fjölmiðlar · Viðskipti
Alveg Portúgal…
18. November, 2007 · 2 athugasemdir
Ég er á leiðinni suður til Portúgal að reynsluaka Porsche Cayenne GTS, sem er nýjasta sportútgáfa þessa vinsæla sportjeppa . Þeir, sem fylgst hafa með skrifum mínum sem bílablaðamanns, vita að ég er fullur lotningar gagnvart verkfræðingunum í Stuttgart, og 911 (með öllum sínum innbyggðu vanköntum) er í sérstöku uppáhaldi.
Ég hef aldrei ekið betri bíl [...]
Flokkun: Bílar
Nasistabulla bullar
17. November, 2007 · Ein athugasemd
Á orðrómsvef Mannlífs má lesa um viðbrögð kynþáttahatarans á Skapara við beiðni DV um viðtal.
Þrátt fyrir að bullbullan þar (sem stundum talar um sig í fleirtölu) hafi beinlínis lýst sig fúsa til viðtals, kom annað hljóð í strokkinn þegar standa átti við stóru orðin. Eins og oftast hjá fólki af þessari gerð, sem hugnast best [...]
Flokkun: Alþjóðamál · Stjórnmál
Áfengisbölið og áfengisbullið
15. November, 2007 · 5 athugasemdir
Það er skrýtið að lesa karmískt innlegg ritstjóra Eyjunnar, þar sem hann áfellist Ágúst Ólaf Ágústsson, varaformann Samfylkingarinnar, fyrir að vera einn flutningsmanna frumvarps um afnám einkasölu Áfengisverslunar ríkisins á bjór og víni. Málflutningur Péturs Gunnarssonar er jafneinkennilegur og sá, sem hefur mátt lesa í ritstjórnargreinum Morgunblaðsins upp á síðkastið. Í stuttu máli gefa Pétur [...]
Flokkun: Stjórnmál · Viðskipti
Liðssöfnuður Staff hershöfðingja
1. November, 2007 · Ein athugasemd
Ég benti Eyverjum á það um daginn, að franska blaðið Libération héti svo, en ekki French Daily Liberation eins og skilja mátti af frétt um pólitísk afdrif Harry Potter. Það var leiðrétt hratt og örugglega.
Svo sé ég að ein mest lesna frétt Eyjunnar þessa stundina fjallar um skaðabótadóm, sem felldur var yfir haturssöfnuðinum Westboro Baptist [...]
Flokkun: Fjölmiðlar · Ræskingar
