Ég sé að Egill Helgason spyr hvort að verið geti að hærra sé gólað í fjölmiðlun um hlýnun andrúmslofts af mannavöldum en efni standi til og vísar þar til fréttar á mbl.is þar sem vitnað er til fréttar Jyllands-Posten og viðtals við danska prófessorinn Ole Humlum.Já, það getur vel verið. Gögn undanfarinna ára styðja ekki [...]
Færslur frá January 2008
Heitar umræður
23. January, 2008 · Engar athugasemdir
Flokkun: Alþjóðamál · Stjórnmál · Vísindi og tækni
Þjófkenningar
6. January, 2008 · 3 athugasemdir
Ég á erfitt með að botna í fréttaflutningi 24 stunda af bókaþjófnaði í Kvaransfjölskyldunni. Þar fær sá stálheiðarlegi náungi Hjörleifur B. Kvaran, núverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, að tjá sig að vild um hvað orðið hafi um bækur, sem hurfu úr dánarbúi föður hans, Böðvars E. Kvaran. Böðvar var annálaður bókamaður og átti margvíslega dýrgripi, þó [...]
Flokkun: Fjölmiðlar · Fréttir
Steingrímur J. og Georg Bjarnfreðarson
6. January, 2008 · Ein athugasemd
[qt:/wp-content/uploads/2008/01/kryddsild.mov 320 256]
Ég má til með að vekja athygli á atviki í upphafi Kryddsíldar Stöðvar 2, sem send var út á gamlársdag. Þar í upphafi vék Sigmundur Ernir Rúnarsson að bloggfærslu ofurbloggarans og iðnaðarráðherrans Össurar Skarphéðinssonar, en í henni bar Össur sig saman við Ólaf Ragnar. Ekki þó forsetann og sinn gamla vopnabróður úr Alþýðubandalaginu, [...]
Össur fagnar fornum félögum
5. January, 2008 · 6 athugasemdir
Það stendur nokkur styrr um hvernig Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, beitir veitingavaldinu.
Fyrsta embættisverk hans eftir að ferðamál féllu honum í skaut um áramótin, var að handvelja Ólöfu Ýrr Atladóttur í embætti ferðamálastjóra, en það var gert „með tilliti til forystuhæfileika og markmiðs jafnréttislaga“, eins og sagði í tilkynningu frá ráðuneytinu. Á mannamáli þýðir það, að hún [...]
Annáll 2007
1. January, 2008 · Engar athugasemdir
JANÚAR
Íslendingar fögnuðu nýju ári með eftirvæntingu og bjartsýni. Árið 2006 hafði reynst einstaklega gjöfult bæði fyrirtækjum og einstaklingum og allt virtist í lukkunnar velstandi. Kynslóðaskipti höfðu orðið í landstjórninni án þess að borgararnir fyndu tilfinnanlega fyrir því og um leið höfðu þau tímamót orðið í atvinnulífinu að fjármálastarfsemi var orðin veigameiri en sjávarútvegur. Margir höfðu [...]
Flokkun: Fréttir
