Enginn er eyland

Andrés Magnússon

Enginn er eyland random header image

Færslur frá April 2008

Kyngreinaálit í bloggfærslum?

25. April, 2008 · 2 athugasemdir

Mér brá nokkuð í brún þegar nafnlaus lesandi Silfurbloggs Egils Helgasonar, sem kallar sig Maggie, gerði því skóna að ég hafi sérstaka unun af því að sparka í liggjandi konur og nefndi til dæmis ábendingu mína um málstol Guðnýjar Hrundar Karlsdóttur í ræðustól á Alþingi. Í þeirri bloggfærslu (ekki frétt eins og Maggie kallaði hana [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Fjölmiðlar · Ræskingar

Uppsagnarbréf frá Láru

25. April, 2008 · 2 athugasemdir

Egill Helgason telur menn hafa farið offari í umræðunni um metnað Láru Ómarsdóttur til fréttaleikstjórnar og segist „enga ástæðu [hafa] til annars en að trúa Láru þegar hún segist hafa verið að grínast“. Enn og aftur er þá ástæða til þess að benda mönnum á að hlýða á orð hennar og meta gamansemina, sem í [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Fjölmiðlar

Var Lára að grínast?

24. April, 2008 · 16 athugasemdir

Lára Ómarsdóttir heldur því fram að hún hafi bara verið að grínast þegar hún bauðst til þess að leikstýra fréttaútsendingu frá Suðurlandsvegi í gær. Sendi meira að segja frá sér yfirlýsingu þess efnis. Já, hahaha! Samstarfsfólk hennar er hins vegar ekki trúað á þessar skýringar í samtölum, sem ég hef átt við það.
En menn geta [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Fjölmiðlar

Versta þingræða sögunnar?

17. April, 2008 · 11 athugasemdir

[qt:/wp-content/uploads/2008/04/2008-04-16_15-36_althingi_91f.mov 320 256]
Þetta hlýtur að vera vandræðalegasta ræða á Alþingi frá þeim vatnaskilum þegar Valdimar Leó Friðriksson gerði hlé á ræðu sinni um frumvarp til vatnalaga til að kasta af sér vatni. Ætli Steingrímur J. Sigfússon myndi ekki kalla ræðuna snautlega?
Til þess að bæta gráu ofan á svart sýnist mér að þetta hafi verið jómfrúrræða [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál

Er betra að brenna mat en að borða hann?

16. April, 2008 · 9 athugasemdir

Menn hafa verið að ræða það síðustu daga hvort þegar séu komnar í ljós geigvænlegar afleiðingar umhverfishræsninnar, en verulegar hækkanir hafa orðið á fæðuhrávöru, sem aðallega er raktar til stóraukinnar framleiðslu á lífeldsneyti hvers konar. Notkun á því er jafnan niðurgreidd í hinum vestræna heimi, þannig að eftirspurnin er bjöguð, en kostnaðurinn af umhverfismærð hinnar [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Alþjóðamál · Stjórnmál

Kreppan kreppir að

16. April, 2008 · Engar athugasemdir

Þennan glæsilega Porsche Cayenne mátti sjá við höfuðstöðvar Glitnis við Kirkjusand, eftir vörslusviptingu er mér sagt. Ég átta mig ekki á því hvort það var bankinn, sem stóð fyrir vörslusviptingunni, eða hvort einhver af fjármálafakírum bankans stóð ekki undir greiðslubyrðinni. En þetta eru fyrirtaksbílar — sportbíll og jeppi í senn — svo ef einhver er [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Bílar · Viðskipti

Löggæslan á Suðurnesjum

11. April, 2008 · 6 athugasemdir

Án þess að ég nenni að fjalla um deiluna með málefnalegum hætti, langar mig til þess varpa fram einni spurningu, sem minn góði vinur Lúðvík Bergvinsson ætti að velta fyrir sér. Svona almennt.
Ef maður er í liði með Kristni H. Gunnarsyni, Árna Johnsen og Grétari Mar Jónssyni, er það ekki vísbending um eitthvað?
Deila færslunni [?]    

[Lesa meira →]

Flokkun: Ræskingar · Stjórnmál

Umferðarmerkingar

11. April, 2008 · 2 athugasemdir

Ég sé að vor góði ritstjóri á Eyjunni leggur orð í belg um vegamerkingar og auðvitað er það rétt hjá honum að það er eitthvað mikið að þegar kemur að vegamerkingum á Íslandi, ekki síst þegar framkvæmdir standa yfir. Sjálfsagt er það líka rétt hjá honum að það hefur verið einhver meinloka í Samgönguráðuneytinu eða [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Bílar · Stjórnmál