Enginn er eyland

Andrés Magnússon

Enginn er eyland random header image

Færslur frá November 2008

Meira um stóra kattarmálið

20. November, 2008 · 14 athugasemdir

Í síðustu færslu minntist ég eilítið á frásögn DV af samskiptum blaðamanns við Davíð Oddsson og kött hans, en í ljós kom að Seðlabankastjóri átti meira vantalað við kött sinn en blaðamann. Ég mæli eindregið með lestri þessarar stórmerkilegu fréttar. Fyrirsögnin „Strauk skógarketti“ er vitaskuld sérstaklega til þess fallin að fanga athygli lesenda.
Þó verð ég [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Fjölmiðlar

Fundarsetur og tilgangur þeirra

19. November, 2008 · 2 athugasemdir

Ég sé að sandkassalið DV er með einhverja furðulega nótu um setu mína á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum á mánudag og gerir því skóna að ég hafi ekki verið á vegum Viðskiptablaðsins þar. Ég átta mig ekki á því hver er tilgangurinn með þessu bulli; ég er blaðamaður á Viðskiptablaðinu, ég var fulltrúi þess á fundinum [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Fjölmiðlar

Myndasafn LIFE komið á Google

19. November, 2008 · 2 athugasemdir

Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hvílíkt þarfaþing Google er, en fyrirtækið hefur fært sig inn á sífellt fleiri svið á vefnum. Þær gagnanámur eru stórfenglegar, svo leita þarf aftur til bókasafnsins í Alexandríu til þess að finna viðlíka dýrð, já ljós í myrkri heimsins.
Nú hefur enn bæst við undrin, því nú [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Almennt · Fjölmiðlar · Menning

Grímuklædd stjórnmál

11. November, 2008 · 13 athugasemdir

Ég sé að Friðjón vinur minn vestra minnist á Nóvemberhreyfinguna svokölluðu í bloggi sínum og spyr hvort máli skipti hver talar. Reifar síðan hverjir séu talsmenn hópsins, sérstaklega þó Benedikt Stefánsson, sem var gestur í Silfri Egils um helgina. Benni er gamall bekkjarbróðir minn úr Melaskóla og toppmaður þó hann sé stækur evrókrati.
En ég hafði [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál

Í leit að banka

7. November, 2008 · 11 athugasemdir

Tómasi Hafliðasyni þykir ekki mikið til um þá hugmynd Guðna Ágústssonar að ríkið kaupi 365, afsakið Rauðsól, nei auðvitað meina ég Nýja sýn. Lái honum hver sem vill. Ég átta mig ekki á því hvað Guðni er að fara; finnst honum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni ekki hafa verið afhent nógsamleg gæði á silfurfati fyrir tilstuðlan hins opinbera og á ábyrgð [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Réttvísin · Stjórnmál · Viðskipti

Spádómar

6. November, 2008 · 5 athugasemdir

Ég sé að Egill Helgason bendir á bloggsíðu sinni á grein á vef Lundúnablaðsins Times, þar sem taldir eru upp tíu menn, sem hafi séð fjármálakreppuna fyrir. Það er ágætlega fjölbreyttur hópur, þó þar sé ekki að finna neinn Íslending. Jafnvel ekki Þorvald Gylfason, sem þó hefur séð þessa kreppu fyrir um áratugaskeið. Eins er merkilegt að enginn þessarra [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál · Viðskipti