Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hvílíkt þarfaþing Google er, en fyrirtækið hefur fært sig inn á sífellt fleiri svið á vefnum. Þær gagnanámur eru stórfenglegar, svo leita þarf aftur til bókasafnsins í Alexandríu til þess að finna viðlíka dýrð, já ljós í myrkri heimsins.
Nú hefur enn bæst við undrin, því nú [...]
Færslur flokkaðar sem „Almennt“
Myndasafn LIFE komið á Google
19. November, 2008 · 2 athugasemdir
Flokkun: Almennt · Fjölmiðlar · Menning
Steingrímur J. og Georg Bjarnfreðarson
6. January, 2008 · Ein athugasemd
[qt:/wp-content/uploads/2008/01/kryddsild.mov 320 256]
Ég má til með að vekja athygli á atviki í upphafi Kryddsíldar Stöðvar 2, sem send var út á gamlársdag. Þar í upphafi vék Sigmundur Ernir Rúnarsson að bloggfærslu ofurbloggarans og iðnaðarráðherrans Össurar Skarphéðinssonar, en í henni bar Össur sig saman við Ólaf Ragnar. Ekki þó forsetann og sinn gamla vopnabróður úr Alþýðubandalaginu, [...]
Nú árið er liðið…
31. December, 2007 · Ein athugasemd
Þá er komið að lokum þessa árs, sem um margt var gjöfult en það tók líka á að öðru leyti eins og gengur.
Í stjórnmálunum voru heilar þingkosningar og stjórnarskipti, en jafnþverstæðukennt og það hljómar urðu samt engin stórtíðindi á þeim vettvangi. Nema ef menn vilja ræða um þá pólitísku lífgjöf, sem Geir H. Haarde veitti [...]
Þræðir sögunnar
26. October, 2007 · Ein athugasemd
Ég sé að Egill Helgason og Andrés nafni minn Jónsson eru að finna að því, svona eftir á, að Björgólfi Thor Björgólfsson skuli hafa verið seld Thorsara-höllin við Fríkirkjuveg 11. Egill sér aðallega eftir athafnasvæði sínu og Kára litla, en hann virðist ekki átta sig á að garðinum fylgja kvaðir um frjálsan aðgang almennings. Andrés [...]
Lofsöngur til Krónunnar
28. September, 2007 · Ein athugasemd
Ég var gerður út af örkinni til þess að kaupa inn til helgarinnar og fór eins og oftast út í Bónus í Kjörgarði. Ég veit að maður á helst ekki að leggja í verslunarferð þangað eftir kl. 15.00, allra síst á föstudegi, en ákvað að taka sjensinn. Það voru mistök. Búðin var enn stappaðri en [...]
Flokkun: Almennt
Bænum breytt
6. September, 2007 · Engar athugasemdir
Ég er sammála Agli Helgasyni um það að verðlaunatillaga Argosar, Gullinsniðs og Stúdíós Granda lítur hreint prýðilega út. Mér finnst vísunin til Nýja bíós ágæt og vel fer á því að flytja hús úr Árbæjarsafni niður á torg. Gæti vel trúað því að breyting í þessa veru yrði til þess að styrkja bæjarmyndina og ef [...]
Flokkun: Almennt · Menning · Stjórnmál
Á faraldsfæti
4. July, 2007 · Engar athugasemdir
Fjölskyldan af hamingjuheimilinu við Ingólfsstræti lagði land undir fót sem fyrr segir, en við höfum einbeitt okkur að Vesturlandi og Vestfjörðum og sjáum heldur betur ekki eftir því. Ég hef ferðast um þessar slóðir áður, en samt hef ég verið að sjá ótal margt nýtt og náttúruundrin blasa hvarvetna við. Ég var líka svo lánsamur [...]
Flokkun: Almennt
