Mér fannst hún soldið merkileg fréttin um að Guðlaugur Þór Þórðarson hafi ekki einu sinni náð meirihlutafylgi í eigin kosningakerfi, þessari rómuðustu kosningamaskínu landsins. Samkvæmt stuðningsmönnum Gulla eru þeir aðeins að fá jákvæð svör frá 45% þeirra, sem hringt er í. Ekki finnst mér það nú til þess að senda út fréttatilkynningar um.
Í dag átti [...]
Færslur flokkaðar sem „Fjölmiðlar“
Skoðanahannanir
13. March, 2009 · 8 athugasemdir
Flokkun: Fjölmiðlar · Stjórnmál
Meira um stóra kattarmálið
20. November, 2008 · 14 athugasemdir
Í síðustu færslu minntist ég eilítið á frásögn DV af samskiptum blaðamanns við Davíð Oddsson og kött hans, en í ljós kom að Seðlabankastjóri átti meira vantalað við kött sinn en blaðamann. Ég mæli eindregið með lestri þessarar stórmerkilegu fréttar. Fyrirsögnin „Strauk skógarketti“ er vitaskuld sérstaklega til þess fallin að fanga athygli lesenda.
Þó verð ég [...]
Flokkun: Fjölmiðlar
Fundarsetur og tilgangur þeirra
19. November, 2008 · 2 athugasemdir
Ég sé að sandkassalið DV er með einhverja furðulega nótu um setu mína á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum á mánudag og gerir því skóna að ég hafi ekki verið á vegum Viðskiptablaðsins þar. Ég átta mig ekki á því hver er tilgangurinn með þessu bulli; ég er blaðamaður á Viðskiptablaðinu, ég var fulltrúi þess á fundinum [...]
Flokkun: Fjölmiðlar
Myndasafn LIFE komið á Google
19. November, 2008 · 2 athugasemdir
Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hvílíkt þarfaþing Google er, en fyrirtækið hefur fært sig inn á sífellt fleiri svið á vefnum. Þær gagnanámur eru stórfenglegar, svo leita þarf aftur til bókasafnsins í Alexandríu til þess að finna viðlíka dýrð, já ljós í myrkri heimsins.
Nú hefur enn bæst við undrin, því nú [...]
Flokkun: Almennt · Fjölmiðlar · Menning
FL ræman
23. July, 2008 · 5 athugasemdir
Ég les í Sandkorni DV einhverjar vangaveltur um hver hafi gert ræmuna um sögu FL Group, sem vakið hefur athygli á netinu að undanförnu, en nafn mitt er nefnt sem mögulegs höfundar. Í ræmunni er vissulega velt upp ýmsum athyglisverðum staðreyndum og spurningum, en ég verð þó að hryggja Sandkyrninginn með því að ég er ekki höfundurinn og kom [...]
Flokkun: Fjölmiðlar · Ræskingar · Viðskipti
70% della
28. June, 2008 · 22 athugasemdir
Að venju hlýddi ég í morgun á útvarpsþáttinn Vikulokin á Rás 1 Ríkisútvarpsins, sem er í umsjá Hallgríms Thorsteinssonar, sem líka bloggar hér á Eyjunni. Gestir hans að þessu sinni þau Andri Snær Magnason, rithöfundur og spámaður, Jón Magnússon, alþingismaður Frjálslynda flokksins, og Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Jón ræddi aðsteðjandi efnahagsvanda og um sumt er [...]
Flokkun: Alþjóðamál · Fjölmiðlar · Stjórnmál · Viðskipti
Sekir, en samt eitthvað svo saklausir
7. June, 2008 · 12 athugasemdir
Það hefur margt verið sagt og ritað um Baugsmálið eftir að dómur Hæstaréttar upp kveðinn. Mikið eru það tuggur, flatneskjur og klisjur og raunar oft á tíðum merkilegt hversu margir menn virðast vera að lesa upp úr sama handritinu. Látum vera þó Jóhannes Jónsson og Hreinn Loftsson noti nákvæmlega sama tungutak, það hefur hent þá [...]
Flokkun: Fjölmiðlar · Fréttir · Réttvísin
Kyngreinaálit í bloggfærslum?
25. April, 2008 · 2 athugasemdir
Mér brá nokkuð í brún þegar nafnlaus lesandi Silfurbloggs Egils Helgasonar, sem kallar sig Maggie, gerði því skóna að ég hafi sérstaka unun af því að sparka í liggjandi konur og nefndi til dæmis ábendingu mína um málstol Guðnýjar Hrundar Karlsdóttur í ræðustól á Alþingi. Í þeirri bloggfærslu (ekki frétt eins og Maggie kallaði hana [...]
Flokkun: Fjölmiðlar · Ræskingar
Uppsagnarbréf frá Láru
25. April, 2008 · 2 athugasemdir
Egill Helgason telur menn hafa farið offari í umræðunni um metnað Láru Ómarsdóttur til fréttaleikstjórnar og segist „enga ástæðu [hafa] til annars en að trúa Láru þegar hún segist hafa verið að grínast“. Enn og aftur er þá ástæða til þess að benda mönnum á að hlýða á orð hennar og meta gamansemina, sem í [...]
Flokkun: Fjölmiðlar
Var Lára að grínast?
24. April, 2008 · 16 athugasemdir
Lára Ómarsdóttir heldur því fram að hún hafi bara verið að grínast þegar hún bauðst til þess að leikstýra fréttaútsendingu frá Suðurlandsvegi í gær. Sendi meira að segja frá sér yfirlýsingu þess efnis. Já, hahaha! Samstarfsfólk hennar er hins vegar ekki trúað á þessar skýringar í samtölum, sem ég hef átt við það.
En menn geta [...]
Flokkun: Fjölmiðlar
