mbl.is/Skapti
Jú, það reyndist rétt (sjá næstu færslu á undan) að umhverfisráðherra hefði snúið úr fríinu til þess að leggja gjörva hönd á plóginn. En Þórunni Sveinbjarnardóttur tókst það svo óhönduglega að hún smíðaði úr plógjárninu
Færslur flokkaðar sem „Fréttir“
Ekki lengi að því!
17. June, 2008 · 6 athugasemdir
Flokkun: Alþjóðamál · Fréttir · Stjórnmál
Absúrdkómedía umhverfisráðherra
17. June, 2008 · Engar athugasemdir
Fréttirnar af hvítabjörnum í heimsóknum hafa borið nokkurn svip af gúrkutíðinni, en því er ekki að leyna að þær hafa líka borið nokkurn keim af funheitum tilfinningum. Sumir vilja helst leggja bangsana í baðmull og forða þeim frá illsku mannanna, meðan aðrir vilji gera langa sögu stutta og koma þeim til Guðs eilífrar blessunar áður [...]
Flokkun: Alþjóðamál · Fréttir · Stjórnmál
Sekir, en samt eitthvað svo saklausir
7. June, 2008 · 12 athugasemdir
Það hefur margt verið sagt og ritað um Baugsmálið eftir að dómur Hæstaréttar upp kveðinn. Mikið eru það tuggur, flatneskjur og klisjur og raunar oft á tíðum merkilegt hversu margir menn virðast vera að lesa upp úr sama handritinu. Látum vera þó Jóhannes Jónsson og Hreinn Loftsson noti nákvæmlega sama tungutak, það hefur hent þá [...]
Flokkun: Fjölmiðlar · Fréttir · Réttvísin
Umhverfisráðherra í útrýmingarhættu?
4. June, 2008 · 11 athugasemdir
Mér sýnist enn ein afsökunin fundin fyrir því að Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkis- og varnamálaráðherra, skuli ekki takast að koma okkur í Öryggisráðið, þó það hafi verið sagt nánast formsatriði fyrir nokkrum mánuðum. Fyrst leyfði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, veiðar á hrefnu (sem að vísu er í engri útrýmingarhættu) og nú heimilaði Þórunn Sveinbjörnsdóttir, umhverfisráðherra, [...]
Kveður kuldaljóð…
9. February, 2008 · Ein athugasemd
Er ekki eitthvað sætt við að dagskrá Vetrarhátíðar skuli blásin af vegna veðurs?
Dagskrá Vetrarhátíðar lokið í kvöld.
Deila færslunni [?]
Flokkun: Fjölmiðlar · Fréttir
Þjófkenningar
6. January, 2008 · 3 athugasemdir
Ég á erfitt með að botna í fréttaflutningi 24 stunda af bókaþjófnaði í Kvaransfjölskyldunni. Þar fær sá stálheiðarlegi náungi Hjörleifur B. Kvaran, núverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, að tjá sig að vild um hvað orðið hafi um bækur, sem hurfu úr dánarbúi föður hans, Böðvars E. Kvaran. Böðvar var annálaður bókamaður og átti margvíslega dýrgripi, þó [...]
Flokkun: Fjölmiðlar · Fréttir
Össur fagnar fornum félögum
5. January, 2008 · 6 athugasemdir
Það stendur nokkur styrr um hvernig Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, beitir veitingavaldinu.
Fyrsta embættisverk hans eftir að ferðamál féllu honum í skaut um áramótin, var að handvelja Ólöfu Ýrr Atladóttur í embætti ferðamálastjóra, en það var gert „með tilliti til forystuhæfileika og markmiðs jafnréttislaga“, eins og sagði í tilkynningu frá ráðuneytinu. Á mannamáli þýðir það, að hún [...]
Annáll 2007
1. January, 2008 · Engar athugasemdir
JANÚAR
Íslendingar fögnuðu nýju ári með eftirvæntingu og bjartsýni. Árið 2006 hafði reynst einstaklega gjöfult bæði fyrirtækjum og einstaklingum og allt virtist í lukkunnar velstandi. Kynslóðaskipti höfðu orðið í landstjórninni án þess að borgararnir fyndu tilfinnanlega fyrir því og um leið höfðu þau tímamót orðið í atvinnulífinu að fjármálastarfsemi var orðin veigameiri en sjávarútvegur. Margir höfðu [...]
Flokkun: Fréttir
Það sem ekki má segja
5. July, 2007 · 22 athugasemdir
Margir voru slegnir óhug vegna hinna misheppnuðu hryðjuverka, sem reynt var að fremja í Bretlandi á dögunum. Orðræðan, sem siglt hefur í kjölfarið, hefur því miður mestanpart verið jafnaumkunarverð og fyrr, þar sem kjökrandi og velmeinandi raddir hafa enn og aftur spurt: „Af hverju hata þeir okkur svo mikið?“ Svarið vefst hins vegar jafnmikið fyrir [...]
Flokkun: Fjölmiðlar · Fréttir
