Enginn er eyland

Andrés Magnússon

Enginn er eyland random header image

Færslur flokkaðar sem „Menning“

Myndasafn LIFE komið á Google

19. November, 2008 · 2 athugasemdir

Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hvílíkt þarfaþing Google er, en fyrirtækið hefur fært sig inn á sífellt fleiri svið á vefnum. Þær gagnanámur eru stórfenglegar, svo leita þarf aftur til bókasafnsins í Alexandríu til þess að finna viðlíka dýrð, já ljós í myrkri heimsins.
Nú hefur enn bæst við undrin, því nú [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Almennt · Fjölmiðlar · Menning

Að iðja er að biðja

23. July, 2008 · Engar athugasemdir

Bendi á ágæta hugvekju um vinnu, vísindi og veröld. Ætli þeir séu ekki fleiri, sem þekkja fullnægju góðs dagsverks. Eða myrkraverka. CARPE NOCTEM!
Deila færslunni [?]    

[Lesa meira →]

Flokkun: Menning · Ræskingar · Vísindi og tækni

Tjáningarfrelsinu ógnað

29. March, 2008 · Ein athugasemd

Hér að neðan mátti um hríð sjá myndina Fitna eftir Geert Wilders í færslunni Ástæðulaus ótti? Óttinn hefur greinilega ekki verið ástæðulaus, því LiveLeak hefur fjarlægt myndbandið eftir að starfsfólki vefjarins bárust alvarlegar hótanir.
Enn má þó finna myndina á YouTube og þaðan eru myndskeiðin að neðan upprunnin. Skulum vona að þau fái að vera þar [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Fjölmiðlar · Menning · Stjórnmál

Spurningakeppni fattlausra

28. March, 2008 · 4 athugasemdir

Mér varð það á að horfa lítillega á spurningaþáttinn Útsvar í Ríkissjónvarpinu, þar sem við áttust lið Kópavogs og Akraness. Þegar ég hætti að horfa var Kópavogur að rótbursta þetta en var samt alls ekki að standa sig vel. Bæði lið flöskuðu á hlutum, sem ég hélt að væru á allra vitorði, áttuðu sig [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Fjölmiðlar · Menning

Ástæðulaus ótti?

28. March, 2008 · 2 athugasemdir

Mér skilst að myndin Fitna eftir Geer Wilders valdi einhverjum hugarangri. Sérstaklega sé múslimum uppsigað við það, sem þar kemur fram, enda margt í myndinni, sem vekur ugg, óhugnaði og jafnvel skelfingu.
Það er hins vegar ekki við Wilders að sakast um það, hið ógeðfellda efni er allt fréttaefni eða upptökur frá íslömskum hryðjuverkamönnum. Það er [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Menning · Stjórnmál

2051 árs ártíð

15. March, 2008 · Ein athugasemd

Í dag er 15. mars og því 2051 ár liðið frá því að Gaius Julius Caesar féll fyrir morðingjahöndum í öldungadeildinni í Róm. Hann var einn mesti merkismaður mannkynssögunnar og má halda því fram að áhrifa hans gæti víða enn, þó það sé yfirleitt með óbeinum hætti nú orðið og í mörg spor hafi fennt. [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Alþjóðamál · Menning · Ræskingar · Stjórnmál

Einum kennt, öðrum bent

4. February, 2008 · 13 athugasemdir

Ríkissjónvarpið gerði nokkuð með yfirlýsingar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, um að auka yrði laun kennara, sem hún lét falla um helgina á fundi með málfundafélaginu Óðni, verkalýðsarmi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þær yfirlýsingar eru í takt við fyrirætlanir um að gera auknar formkröfur til kennara, að þeir skuli hafa lokið meistaranámi í háskóla til þess að [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Menning · Stjórnmál

Yfirvogað undirmálskántrí

17. December, 2007 · Engar athugasemdir

Deila færslunni [?]    

[Lesa meira →]

Flokkun: Menning · Viðskipti

Harry Potter og pólitíkin

28. October, 2007 · Engar athugasemdir

Á Eyjunni má finna frásögn af grein franska blaðsins Libération um hvernig Harry Potter eigi að vera einhver lykilsaga gegn Möggu Thatcher, Phony Blair og bandaríska draumnum, eins og miðstéttir Bretlands vilji upplifa hann. Potter sé í raun ofurhetja hinnar vinstrisinnuðu öreigahástéttar og eitthvað svoleiðis. Þessu heldur heimspekingurinn og málfræðingurinn Jean-Claude Milner fram í grein, [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Alþjóðamál · Menning · Stjórnmál

Þræðir sögunnar

26. October, 2007 · Ein athugasemd

Ég sé að Egill Helgason og Andrés nafni minn Jónsson eru að finna að því, svona eftir á, að Björgólfi Thor Björgólfsson skuli hafa verið seld Thorsara-höllin við Fríkirkjuveg 11. Egill sér aðallega eftir athafnasvæði sínu og Kára litla, en hann virðist ekki átta sig á að garðinum fylgja kvaðir um frjálsan aðgang almennings. Andrés [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Almennt · Menning