Orð og gerðir herra Ólafs Ragnars Grímssonar hafa að undanförnu vakið æ meiri efasemdir um forsetann og þær brautir, sem hann hefur leitt forsetaembættið út á. Hirðvæðing þess orkaði tvímælis, flaður hans og daður við auðmenn (aðallega þekkta brotamenn) var hrein hneisa, en þessa dagana virðast forsetahjónin önnum kafin við að verða sér og þjóðinni [...]
Færslur flokkaðar sem „Réttvísin“
Veislan er búin
19. February, 2009 · 19 athugasemdir
Flokkun: Réttvísin · Stjórnmál · Óflokkað
Í leit að banka
7. November, 2008 · 11 athugasemdir
Tómasi Hafliðasyni þykir ekki mikið til um þá hugmynd Guðna Ágústssonar að ríkið kaupi 365, afsakið Rauðsól, nei auðvitað meina ég Nýja sýn. Lái honum hver sem vill. Ég átta mig ekki á því hvað Guðni er að fara; finnst honum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni ekki hafa verið afhent nógsamleg gæði á silfurfati fyrir tilstuðlan hins opinbera og á ábyrgð [...]
Flokkun: Réttvísin · Stjórnmál · Viðskipti
Réttvísin og viðskiptaumhverfið
8. June, 2008 · Engar athugasemdir
Í athugasemd um fyrri færslu um sekt og sakleysi Baugsmanna vék Balzac að þeirri skoðun minni, að Jóni Ásgeiri Jóhannessyni væri í lófa lagið að ganga úr stjórnum fyrirtækja, en hafa þar þó áfram tögl og hagldir:
Ég skil. Ekki ósvipað og þegar ráðherra víkur sæti vegna hagsmunaáreksturs.
Þannig má vel líta þannig á það, þó samlíkingin [...]
Flokkun: Réttvísin
Sekir, en samt eitthvað svo saklausir
7. June, 2008 · 12 athugasemdir
Það hefur margt verið sagt og ritað um Baugsmálið eftir að dómur Hæstaréttar upp kveðinn. Mikið eru það tuggur, flatneskjur og klisjur og raunar oft á tíðum merkilegt hversu margir menn virðast vera að lesa upp úr sama handritinu. Látum vera þó Jóhannes Jónsson og Hreinn Loftsson noti nákvæmlega sama tungutak, það hefur hent þá [...]
Flokkun: Fjölmiðlar · Fréttir · Réttvísin
