Enginn er eyland

Andrés Magnússon

Enginn er eyland random header image

Færslur flokkaðar sem „Stjórnmál“

Nei nei, nei nei, nei.

6. March, 2010 · 5 athugasemdir

Aldrei hefur framganga stjórnarinnar verið einkennilegri en nú. Jóhanna Sigurðardóttir, sem segist vera forsætisráðherra, gefur út þá tilkynningu í málgagni ríkisstjórnarinnar að hún ætli að sitja heima í þjóðaratkvæðagreiðslunni af því að hún sé markleysa.
Markleysa?! Af hverju skyldi hún vera markleysa? Þarna er kosið um lögin, sem Jóhanna sjálf [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál

Vélað gegn lýðræðinu — Steingrímur verður að segja af sér

7. December, 2009 · 12 athugasemdir

Fregnirnar af tölvupóstsamskiptum Indriða H. Þorlákssonar, aðstoðarmanns fjármálaráðherra og þá settum ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins, og Mark Flanagan, fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í málefnum Íslands, hinn 13. og 14. apríl síðastliðinn, sem Wikileaks hafa birt, eru alveg hreint ótrúlegar. Þar í felast ótal hneyksli á báða bóga. Það er t.d. varla sætt lengur fyrir fulltrúa AGS, sem nú [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál

Illa vopnað fullvalda ríki

16. November, 2009 · 7 athugasemdir

Var að lesa athyglisverða grein Ambrose Evans-Pritchard í Telegraph um hvernig Kína sé pappírstígrisdýr. Það sé ekki sú nýja efnahagslega aflvél heimsins, sem sumir hafi viljað vera láta. Nema hvað það er ekki meinlaust eins og pappírstígrisdýr, því það geti valdið verulegum skaða og jafnvel hrundið af stað Stóru kreppu.
Hér á Englandi hafa margir áhyggjur [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Alþjóðamál · Stjórnmál · Viðskipti

Aðildarviðræður við vinstristjórnina?

16. July, 2009 · 3 athugasemdir

Ég sé í Orðinu á götunni hér á Eyjunni, að þar telja menn víst að tillagan um aðildarumsókn að Evrópusambandinu verði samþykkt á Alþingi nú á eftir. Ég ætla mér ekki þá dul að spá fyrir um það, en það má ljóst vera að afar mjótt er á mununum og getur hæglega farið á hvorn [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál

Það er stjórnakreppa í landinu

27. June, 2009 · 19 athugasemdir

Það er mikið skrafað um pólitíkina á Íslandi, enda um nóg að fjalla. Samt er það svo að ég hef engan séð fjalla stærsta málið, þá augljósu staðreynd að það er stjórnarkreppa í landinu.
Þetta Icesave-mál verður aðeins einkennilegra eftir því sem tíminn líður, en hvað sem mönnum kann að finnast um efni máls verður ekki [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál

Opið bréf til Illuga Jökulssonar

22. June, 2009 · 40 athugasemdir

Nú þegar ljóst virðist að mjög háar upphæðir falli á þjóðina, vegna gáleysis og Evrópuþjónkunar þess stjórnmálaflokks sem þú hefur stutt, munt þú þá ekki örugglega leitast af fremsta megni við að borga þá alla upphæð sem afgangs verður þegar eignir hins fallna bankakerfis hafa verið seldar?
Spurt af tröllskap af gefnu tilefni.
Deila færslunni [?]    

[Lesa meira →]

Flokkun: Ræskingar · Stjórnmál

Allt nema efni máls

24. April, 2009 · Engar athugasemdir

Ég sé að Össur Skarphéðinsson hefur nýlega rofið þögn sína, sem að líkindum gerðist um svipað leyti og forsætisráðherra dró sig inn í skel sína. Í nótt skrifar hann pistil um hin sérkennilegu málefni svilkonu sinnar, Icesave og ESB… eða nei, það gerði hann víst alls ekki. Hann skrifaði nefnilega um gagnrýni Björns Bjarnasonar á [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál

Fjör um fjöreggið

19. April, 2009 · 2 athugasemdir

Mér var bent á að Árni Snævarr hefði skrifað „magnaðan pistil“ á blogg sinn, þar sem hann fjallaði um þau orð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, að í kosningabaráttunni hefði verið vegið að öllu því, sem íslenskt væri. Nú má vel gera athugasemd við þau orð og ræða á marga lund. Sjálfur get ég a.m.k. ekki kvittað [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Alþjóðamál · Stjórnmál

Skoðanahannanir

13. March, 2009 · 8 athugasemdir

Mér fannst hún soldið merkileg fréttin um að Guðlaugur Þór Þórðarson hafi ekki einu sinni náð meirihlutafylgi í eigin kosningakerfi, þessari rómuðustu kosningamaskínu landsins. Samkvæmt stuðningsmönnum Gulla eru þeir aðeins að fá jákvæð svör frá 45% þeirra, sem hringt er í. Ekki finnst mér það nú til þess að senda út fréttatilkynningar um.
Í dag átti [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Fjölmiðlar · Stjórnmál

Veislan er búin

19. February, 2009 · 19 athugasemdir

 
Orð og gerðir herra Ólafs Ragnars Grímssonar hafa að undanförnu vakið æ meiri efasemdir um forsetann og þær brautir, sem hann hefur leitt forsetaembættið út á. Hirðvæðing þess orkaði tvímælis, flaður hans og daður við auðmenn (aðallega þekkta brotamenn) var hrein hneisa, en þessa dagana virðast forsetahjónin önnum kafin við að verða sér og þjóðinni [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Réttvísin · Stjórnmál · Óflokkað