Enginn er eyland

Andrés Magnússon

Enginn er eyland random header image

Færslur flokkaðar sem „Viðskipti“

Illa vopnað fullvalda ríki

16. November, 2009 · 7 athugasemdir

Var að lesa athyglisverða grein Ambrose Evans-Pritchard í Telegraph um hvernig Kína sé pappírstígrisdýr. Það sé ekki sú nýja efnahagslega aflvél heimsins, sem sumir hafi viljað vera láta. Nema hvað það er ekki meinlaust eins og pappírstígrisdýr, því það geti valdið verulegum skaða og jafnvel hrundið af stað Stóru kreppu.
Hér á Englandi hafa margir áhyggjur [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Alþjóðamál · Stjórnmál · Viðskipti

Í leit að banka

7. November, 2008 · 11 athugasemdir

Tómasi Hafliðasyni þykir ekki mikið til um þá hugmynd Guðna Ágústssonar að ríkið kaupi 365, afsakið Rauðsól, nei auðvitað meina ég Nýja sýn. Lái honum hver sem vill. Ég átta mig ekki á því hvað Guðni er að fara; finnst honum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni ekki hafa verið afhent nógsamleg gæði á silfurfati fyrir tilstuðlan hins opinbera og á ábyrgð [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Réttvísin · Stjórnmál · Viðskipti

Spádómar

6. November, 2008 · 5 athugasemdir

Ég sé að Egill Helgason bendir á bloggsíðu sinni á grein á vef Lundúnablaðsins Times, þar sem taldir eru upp tíu menn, sem hafi séð fjármálakreppuna fyrir. Það er ágætlega fjölbreyttur hópur, þó þar sé ekki að finna neinn Íslending. Jafnvel ekki Þorvald Gylfason, sem þó hefur séð þessa kreppu fyrir um áratugaskeið. Eins er merkilegt að enginn þessarra [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál · Viðskipti

Vondir dagar í borg óttans

3. October, 2008 · 8 athugasemdir

Það má sjá og finna ugginn í fólki vegna efnaagsástandsins.
Ástandið er ískyggilegt; eins og lesa má um í Viðskiptablaðinu í dag hafa allar erlendar lánalínur lokast og þær opnast tæpast aftur í bráð.Á fjármálamörkuðum heimsins ríkir mikill beygur og það er erfitt að slá lán nánast hvern sem er, hvar sem er í heiminum. Á [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Stjórnmál · Viðskipti

FL ræman

23. July, 2008 · 5 athugasemdir

Ég les í Sandkorni DV einhverjar vangaveltur um hver hafi gert ræmuna um sögu FL Group, sem vakið hefur athygli á netinu að undanförnu, en nafn mitt er nefnt sem mögulegs höfundar. Í ræmunni er vissulega velt upp ýmsum athyglisverðum staðreyndum og spurningum, en ég verð þó að hryggja Sandkyrninginn með því að ég er ekki höfundurinn og kom [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Fjölmiðlar · Ræskingar · Viðskipti

Uppraktir útúrsnúningar

1. July, 2008 · 8 athugasemdir

Ég sé að Guðmundur Gunnarsson er að senda mér skeyti eftir að ég kom fram í Íslandi í dag á Stöð 2 ásamt Jóni G. Haukssyni ritstjóra Frjálsrar verslunar að ræða gjaldmiðilsmálin stuttlega.
Mér sýnist að vísu að Guðmundur hafi ekki fylgst alveg nógu vel með, því hann sakar mig um útsnúninga án þess að fara [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Alþjóðamál · Stjórnmál · Viðskipti

70% della

28. June, 2008 · 22 athugasemdir

Að venju hlýddi ég í morgun á útvarpsþáttinn Vikulokin á Rás 1 Ríkisútvarpsins, sem er í umsjá Hallgríms Thorsteinssonar, sem líka bloggar hér á Eyjunni. Gestir hans að þessu sinni þau Andri Snær Magnason, rithöfundur og spámaður, Jón Magnússon, alþingismaður Frjálslynda flokksins, og Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Jón ræddi aðsteðjandi efnahagsvanda og um sumt er [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Alþjóðamál · Fjölmiðlar · Stjórnmál · Viðskipti

Söngur bankamannsins

25. June, 2008 · Ein athugasemd

Sólin er risin, sumar í bænum,
sveitirnar klæðast nú feldinum grænum.
Ómar allt lífið af ylríkum söng
unaðsbjörtu dægrin löng.
Sól, sól skín á mig;
ský, ský burt með þig.
Gott er sólinni að gleðja sig.
Sól, sól skín á mig.
Blóm vekur skrautlega iðandi angan,
andblærinn bælir við marglitan vangann.
Ómar allt [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Viðskipti

Hvenær kemur iPhone?

10. June, 2008 · 6 athugasemdir

Steve Jobs, Apple-páfi, var í gær að kynna næstu kynslóð iPhone símanna vinsælu. Skemmst er frá því að segja að þeir eru með 3G og GPS, auk þess sem stuðningur er við Exchange-miðlara og ýmsir fídusar aðrir, sem eiga að gera þá álitlegri í fyrirtækjaumhverfi en mun örugglega ekki spilla fyrir þeim á einstaklingsmarkaði heldur. [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Viðskipti · Vísindi og tækni

Kreppan kreppir að

16. April, 2008 · Engar athugasemdir

Þennan glæsilega Porsche Cayenne mátti sjá við höfuðstöðvar Glitnis við Kirkjusand, eftir vörslusviptingu er mér sagt. Ég átta mig ekki á því hvort það var bankinn, sem stóð fyrir vörslusviptingunni, eða hvort einhver af fjármálafakírum bankans stóð ekki undir greiðslubyrðinni. En þetta eru fyrirtaksbílar — sportbíll og jeppi í senn — svo ef einhver er [...]

[Lesa meira →]

Flokkun: Bílar · Viðskipti